ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.8° 8m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

SÍÐUSTU FORVOÐ

11:36 › 27. desember 2008


Við skulum öll mæta á mótmælafund á Austurvelli klukkan þrjú í dag. Það eru síðustu forvoð að sýna ráðamönnum í þessu landi að þau verði að hafa þjóðina með í ráðum ef ekki á mjög illa að fara.

Andrúmsloftið hér í febrúar gæti orðið skelfilegt og reyndar hættulegt ef fólk fær ekki lágmarkssvör við kröfum sínum.

Það verður bókstaflega að fá erlenda stjórnendur að rannsókninni sem fara á fram á hruninu. Hve erfitt er að sjá það?

Það verður líka að láta að vilja fólks og senda heim nokkra helstu leikendurna í hruninu sem enn sitja sem fastast í sínum stöðum. Það er svívirðing við réttlætisvitund þjóðarinnar, sem þarf að taka á sig allar þessar byrðar, að þessir menn sleppi með öllu og haldi áfram að þiggja sín háu laun.

Það verður líka að gera fólki ljóst og leyfa því að taka þátt í þeim ráðstöfunum sem ég ætla rétt að vona að sé verið að gera til að forða hér fjöldagjaldþrotum heimila og vel rekinna fyrirtækja sem ekki hafa neitt til saka unnið.

Það verður að koma á daginn hvað er verið að gera og hvað er hægt að gera til að fá þá útrásarvíkinga sem settu landið á hausinn til að leggja það fé sem eftir er í uppbyggingu hér á landi, en ekki lúxuslíf í útlöndum.

Mætum klukkan þrjú.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?