Þessi grein Wall Street Journal er náttúrlega mjög góð um aðdraganda bankahrunsins.
Sorgleg lesning.
Í mínum huga vekur hún einkum tvær spurningar.
Hvernig stendur á því að enginn íslenskur fjölmiðill hefur enn skrifað grein af þessu tagi? Þar sem hinir örlagaríku dagar í haust eru raktir?
Er það af metnaðarleysi, hæfileikaleysi eða kannski af því fjölmiðlarnir vilja ekki rugga bátum eigenda sinna?
Sem mér persónulega finnst fáfengileg skýring. Öllum má vera sama um hverjir teljast eiga íslenska fjölmiðla þegar hér er komið. Þeir verða bara að standa sig, alveg burtséð frá því.
En hin spurningin er þessi: Hve margir tóku eftir þeirri fullyrðingu blaðamannsins að ef við hefðum haft evru hefði þetta ekki farið svona illa?
Blogg
MÚRSTRÆTISANNÁLL UM ÍSLENSKA BANKAHRUNIÐ
14:01 › 27. desember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
