ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.8° 8m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

GUÐRÚN HELGA FREKAR EN SJÓRÆNINGJAR

21:56 › 27. desember 2008


Ég heyrði Egil Örn Jóhannsson hjá JPV í fréttatíma útvarps eða sjónvarps tala um hvað íslenskar skáldsögur hefðu selst vel fyrir þessi jól.

Betur en erlendar skáldsögur, en líka betur en íslenskar ævisögur og barnabækur.

En íslenskar barnabækur eiga líka von.

Rétt í þessu var níu ára sonur minn, sem þó er heilmikill töffari og alinn upp á hazar tölvuleikjanna, að gefast upp á Pirates of the Caribbean í sjónvarpinu og bað um að fá að komast inn í rúm að halda áfram að lesa nýjustu bókina hennar Guðrúnar Helgadóttur.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?