ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.8° 8m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

12,5 PRÓSENT KREPPUNNAR LIÐIN?

15:38 › 27. desember 2008


Fundurinn á Austurvelli áðan var fínn. Það var ekki sérlega fjölmennt, en ekkert vandræðalega fámennt heldur.

Ég skil reyndar ekki af hverju ekki mæta fleiri svona dags daglega. Þessir fundir eru frábær leið til að lýsa þeirri skoðun sinni að maður sé ekki sáttur við hvernig komið er.

Og þarna geta allir sameinast. Þótt yfirlýst markmið fundanna sé fyrst og fremst að stjórnvöld sæti ábyrgð og yfirmenn Fjármálaeftirlits og Seðlabanka víki, þá fá útrásarvíkingar og bankamenn líka á baukinn.

Ragnhildur Sigurðardóttir sagnfræðingur og Björn Þorsteinsson sagnfræðingur fluttu ávörp, sem bæði voru fín. Þau bæði en þó kannski einkum Björn viku að því sem verður æ mikilvægara að við hugleiðum - hvers konar stjórnkerfi viljum við að komi í stað þess sem nú er orðið gjaldþrota.

Því við getum ekki bara kraflað okkur upp úr þessum pytt og svo er allt við það sama.

Við viljum ekki: "Áfram Ísland", heldur "Nýtt Ísland" - einhvern veginn þannig orðaði Björn það og var fínt hjá honum.

Meðan ég stóð þarna og hlustaði á þau tvö og svo Hörð Torfason, þá varð mér hugsað til þess að þetta væri tólfta laugardaginn í röð sem ég mætti þarna á Austurvöll.

Þrír mánuðir eru liðnir af kreppunni.

Svo fátt er þó enn komið á hreint.

En um leið hugsaði ég: Ef við gefum okkur að erfiðasti partur kreppunnar taki tvö ár, þá eru nú þrátt fyrir allt 12,5 prósent að baki.

Það er ekkert svo lítið.

Þetta var mér heilmikil huggun þangað til ég uppgötvaði að samkvæmt sama útreikningi væru 87,5 prósent eftir.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?