ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.8° 8m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

STYRMIR Í MUNCHEN

14:25 › 26. desember 2008


Varla er orðum eyðandi á þessa samlíkingu Styrmis Gunnarssonar um að mögulegum samningum Íslands um inngöngu í Evrópusambandið megi líkja við samninga Chamberlains forsætisráðherra Bretlands við Hitler 1938.

Það er einfaldlega engin brú í slíkri samlíkingu, og sennilega ber það fyrst og fremst vitni um örvæntingu Styrmis að grípa til þessa.

Það er ekki nóg með að Evrópusambandið sé svo sannarlega enginn Hitler, heldur erum við ekki breska heimsveldið.

En nóg um það.

Það er hins vegar þetta tal um fullveldið.

Það kemur fram hjá Styrmi í n-ta skipti að ef við göngum í Evrópusambandið glötum við fullveldi okkar og sjálfstæði.

Ég hef spurt áður og spyr enn: Er Portúgal ekki sjálfstætt ríki?





ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?