ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.8° 8m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

GLÖGGT ER GESTS AUGAÐ, ER ÞAÐ EKKI?

18:20 › 26. desember 2008


Þegar maður les þennan pistil Gunnars Axels verður enn furðulegra en áður hvers vegna Samfylkingin rann fyrir sitt leyti á rassinn með kröfurnar um að rannsóknin á bankahruninu yrði undir forsjá útlendinga, ekki Íslendinga.

Því Samfylkingin hlýtur að leggja eyrun við skoðunum sinna bestu manna, eins og Gunnars Axels.

Það er vandfundinn maður á Íslandi sem ekki tengist einhverjum aðila málsins á einhvern hátt en Páll Hreinsson virðist alla vega ekki rétti maðurinn, miðað við þessa lesningu.

Hvað varð annars um kröfuna um að valinkunnur útlendingur yrði fenginn til að stýra rannsókninni á hruni bankanna?

Ég man ekki betur en allir hafi verið hjartanlega sammála um það til að byrja, jafnvel menn á svo ólíkum póstum sem Davíð Oddsson og Jón Ásgeir Jóhannesson í frægum þætti af Silfri Egils.

En sú krafa virtist einhvern veginn hafa gufað upp.

Og það er því miður líklegt að rannsóknin verði ekki að fullu marktæk fyrir vikið. Ég efast ekki um að allir muni vinna sitt verk af heiðarleika. En tortryggnin í samfélaginu er bara of mikil og allir of inviklaðir.

Glöggt er gests augað, segir máltækið. Sá sannleikur hefur ekki breyst.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?