Það er vissulega merkilegt að kínverski flotinn sé á leiðinni í Adenflóa að stoppa þar sjórán.
Kínverskur floti sást síðast á þeim slóðum í upphafi 15. aldar þegar stærsti skipafloti heims sigldi frá Kína um allt Indlandshaf og langt suður með austurströnd Afríku.
Ef Kínverjarnir hefðu haldið áfram siglingu sinni hefðu þeir með léttum leik komist norður með vesturströnd Afríku og til Evrópu.
Þar sem menn eins og Kólumbus voru enn ekki fæddir.
Kínverjar hefðu notið landafundanna miklu, ekki Evrópumenn tæpri öld síðar.
Evrópa hefði orðið útnári frá kínverskum nýlendum.
En keisarinn sem stóð fyrir þessum miklu siglingum dó og arftaki hans hafði engan áhuga á umheiminum eða erlendum samskiptum. Hann lokaði sig inni í Borginni heilögu og lét flotann fúna.
Kannski er sigling kínversku herskipanna til stranda Sómalíu merki um að eftir tæplega 600 ára hlé hefur útþensla Kínverja á úthöfunum loks hafist aftur.
Blogg
600 ÁRA HLÉI LOKIÐ?
11:16 › 26. desember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
