ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.8° 8m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

VIÐ ERUM SVO SEIN AÐ HUGSA ...

08:40 › 23. desember 2008


... og ég ekkert síður en aðrir.

Hvað er langt síðan Björgólfur Guðmundsson kom í viðtal við Kastljós og upplýsti að bresk stjórnvöld hefðu boðist til að leysa Landsbankann úr snöru Icesave-reikninganna með því að flytja þá til Bretlands?

Er það ekki mánuður eða meira? Tveir mánuðir?

Og jú, auðvitað hnutum við um þetta og leituðum skýringa.

Svolitla stund.

Baldur McQueen gerði t.d. sitt besta.

En þegar við fengum engar skýringar, þá fórum við bara að hugsa um eitthvað annað.

Núna erum við skyndilega reiðubúin til að horfast í augu við málið.

Sem er náttúrlega tröllvaxið, tröllvaxið klúður.

Sem við og börnin okkar verðum lengi að súpa seyðið af.

Einhverjir VERÐA að taka ábyrgð á þessu. Og umfram allt verðum við að fá að vita hvað gerðist.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?