ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.3° 8m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

SVONA ERU ÍSLENDINGAR LEIKNIR

10:48 › 22. desember 2008


Úti í búð í gær sá ég fullorðinn mann á mínum aldri næstum fara að gráta.

Hann var bara að raða einhverjum vörum í kerru og virtist á engan hátt í neinu "ástandi".

Þá var eins og þyrmdi allt í einu yfir hann og ég sá mér til skelfingar að hann var alveg að bresta í grát.

Það var ekki af því honum blöskraði verðlagið eða hefði ekki efni á akkúrat því sem hann þurfti að kaupa inn. Mér sýndist líðan mannsins alveg óháð þessum tilteknu innkaupum.

Það var bara eins og honum væri allt í einu öllum lokið stundarkorn.

Hann greip fyrir augu sér og það tísti einhvern veginn í honum.

Þetta stóð aðeins örfáar sekúndur. Svo herti hann sig upp og hélt bara áfram að kaupa í matinn.

Svona eru Íslendingar leiknir fyrir jólin 2008.

Eru ráðamenn ekki stoltir?



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?