ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.3° 8m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

SELJIÐ LÚXUSÍBÚÐIRNAR

08:43 › 22. desember 2008


DV birtir í dag litla úttekt á því hvar auðmennirnir okkar ætla að vera um jólin. Margir þeirra verða í lúxusíbúðum sínum erlendis. Jón Ásgeir í New York, Sigurður Einarsson og Bakkabræður í London. Björgólfur Thor verður líklega heima á Íslandi, heldur DV, þótt hann búi líka vel í Bretlandi. Og þótt mér sýnist að ekki sé minnst á hann í greininni, ætli Bjarni Ármannsson verði þá ekki í Noregi?

Ef einhver alvara væri í þeim orðum sem a.m.k. sumir þessara útrásarvíkinga hafa látið falla um að þeir vildu leggja sig alla fram um að taka þátt í enduruppbyggingu Íslands ættu þeir að selja þessar lúxusíbúðir og nota peningana til að bjarga atvinnu fólks á Íslandi. Þeir geta alveg haft minna umleikis í útlöndum á næstunni!



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?