Af hverju í ósköpunum á að styrkja fyrirtæki til að fara í mál við Breta út af hryðjuverkalögunum alræmdu?
Þá væntanlega fyrst og fremst Kaupþing og Landsbankann?
Af hverju fer ríkið ekki sjálft í mál?
Víst urðu þessir tveir bankar fyrir gríðarlegu tjóni, einkum Kaupþingi. En fyrir allra mestu tjóni urðu þó Íslendingar sjálfir.
Þjóðin sem heild.
Og hvað á að gera við skaðabætur sem hugsanlega og vonandi fást úr hendi Breta? Láta bara Kaupþing fá þær?
Kaupþing sem þá verður kannski komið í hendur erlendra skuldunauta?
Eða - ef málareksturinn tekur mörg herrans ár - búið að einkavæða bankann að nýju, hérlendis, amk að einhverju leyti?
Og þó Kaupþing verði þá enn ríkisbanki, af hverju ættu mögulegar skaðabætur að detta eingöngu þar inn?
Það erum við öll sem ættum að fá þær skaðabætur.
Blogg
HVERJIR FÁ SKAÐABÆTUR FRÁ BRETUM?
07:49 › 22. desember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
