09:51 › 22. desember 2008
Á Íslandi þykir hver maður dæma sig úr leik í rökræðu sem verður það á að nefna Adolf Hitler eða nasismann almennt í tengslum við andstæðinga sína.
Hitler og nasistar fóru svo ógnarlangt út fyrir allt almennilegt siðferði að það er talið beinlínis fáránlegt að líkja einhverjum við þá.
Og líka argasti dónaskapur.
Athyglisvert er að erkibiskupinn í Kantaraborg er ekki hræddur við þetta. Hann líkir Gordon Brown og efnahagspólitík hans óhikað við Adolf Hitler.
Hér á Trésmiðjunni munum við aldrei ganga svona langt.
Engum verður hér líkt við Hitler!!!



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
