Forkólfar ríkisstjórnarinnar staglast á því að þau ætli ekki að "hlaupa frá ábyrgð sinni" á "björgunarstarfinu" og "endurbyggingunni".
En reyndar er nú málum blandið hvernig hvorttveggja fer af stað.
MJÖG málum blandið.
En þessir forkólfar virðast ekki skilja að við þurfum að fá eitthvað nýtt.
Við þurfum að fá nýja hugsun, nýtt hugarfar, nýtt siðferði.
Og alveg áreiðanlega nýtt fólk.
Fólk sem getur blásið okkur trúnaði í brjóst meðan við kröflum okkur út úr forinni sem útrásarvíkingar og óhæfir stjórnmálamenn hafa komið okkur í.
Vegferðin upp úr þeirri for getur aldrei orðið "business as usual".
Blogg
NÝTT FÓLK
09:06 › 21. desember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
