Það er ástæða til að vekja athygli á þessari grein hér í New York Times. Hún er að vísu löng og hún er um hvernig kreppan horfir við Bandaríkjamönnum, en þaðan er kreppan jú komin svo þetta er lærdómsríkt fyrir okkur líka.
Eins og við vitum náttúrlega öll núorðið (nema eitt eða tvö nátttröll) þá liggja frumorsakir kreppunnar í nýfrjálshyggjunni sem vildi vísa út í hafsauga öllu eftirliti og lagareglum sem gætu hindrað hinn alvitra markað í að starfa.
Og var í þessu tilfelli rekin áfram af fasteignamarkaðnum sem blés út, beinlínis af því forsetinn og menn hans vildu það. Allir áttu að eignast fasteign. Það var þungamiðjan í stefnu Bush.
Í Bandaríkjunum tókst nýfrjálshyggjunni að verulegu leyti að eyða "óþarfa" regluverki í efnahagskerfinu og ennþá betur hér.
Maður bifast beinlínis af kuldahlátri þegar því er lýst í greininni hvernig George W. Bush situr ráðvilltur og spyr: "Hvernig enduðum hér?"
Á Íslandi fengu hákarlar viðskiptalífsins enn meira frelsi en vestanhafs.
Blogg
"HVERNIG ENDUÐUM VIÐ HÉR?"
10:12 › 21. desember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
