09:36 › 21. desember 2008
Þetta hér hafði farið framhjá mér. Jakobína Ingunn Ólafsdóttir heldur úti þessari síðu þar sem vakin er athygli á að einhvers staðar í reglugerðum ESB séu undanþáguákvæði sem hefðu getað minnkað ábyrgð Íslendinga á innistæðutryggingum á innistæðum erlendis.
En menn virðast hreinlega hafa gleymt því!!!
Og Geir Haarde er ekkert að gera veður út af því.
Stundum verður sagan um hrunið, aðdraganda þess og afleiðingar, svo hörmuleg að mann setur hljóðan.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
