ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.3° 8m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

BURT MEÐ ÓÞÖRF SENDIRÁÐ!

11:21 › 21. desember 2008


Það er strax til bóta að selja sendiráðsbústaðina í Osló, London, Washington og New York, svo sem hérna segir frá.

En utanríkisráðuneytið getur gengið svo miklu miklu lengra í niðurskurði á sendiráðum.

Meiriparturinn af sendiráðum okkar er óþarfur. Þau tilheyra gömlum tíma þegar samskipti milli landa tóku langan tíma og það var gott fyrir ríki að hafa fulltrúa sína í höfuðborgum annarra landa til að tala máli sínu.

Nú taka flestöll samskipti sekúndubrot.

Ég efast ekki um að í öllum sendiráðum Íslands telji menn sig vera að vinna þarft og gott starf samkvæmt forsendum þeirrar utanríkisþjónustu sem hefur svo lengi verið við lýði.

En ég efast heldur ekki um að langflest þeirra verkefna væri hægt að vinna með öðrum hætti.

Og miklu ódýrar.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?