ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.3° 8m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

UNDIR SNJÓ

15:52 › 20. desember 2008


Stundum leyfir maður sér að hugsa hálfa hugsun um eitthvað annað en kreppuna. Síðastliðið sumar setti fjölskyldan niður eitthvað um 2.000 örsmáar birkihríslur í landskika sem við eigum austur undir Heklu.

Þegar allt er svona á kafi í snjó fer ég iðulega að hugsa til þessara litlu plantna. Hvernig þær skrimti í frosnum jarðveginum og undir snjónum. Hvort þær laufgist næsta vor. Og hvort ég muni lifa að sjá þær verða að myndarlegum skógi.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?