ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.3° 8m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

STEINGRÍMUR OG ESB

12:13 › 20. desember 2008


Þau Steingrímur J. Sigfússon og Katrín Jakobsdóttir sögðu margt nýtilegt í Vikulokunum á Rás eitt áðan.

Varðandi ESB, þá taldi Steingrímur einsýnt að kjósa um hvort sækja skyldi um aðild.

Mér hefur ævinlega þótt slík kosning tímaeyðsla.

Af því hin raunverulega niðurstaða mun ráðast í þeirri einu kosningu sem skiptir máli, það er að segja aðildarkosningunni sjálfri.

Ef maður vill snúa út úr, þá mætti spyrja hvort ekki væri alveg eins ástæða til að kjósa um hvort kjósa skyldi um hvort sótt skuli um aðild.

En ég vil ekki snúa út úr.

Svo þetta var ágætt hjá Steingrími. 



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?