ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.3° 8m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

ELLEFU MÍNÚTUR

10:02 › 20. desember 2008


Mótmæli hafa verið að breiðast út og breyta um svip að undanförnu. Það er gott.

Hins vegar finnst mér enn mikilvægt að standa á Austurvelli klukkan þrjú á laugardögum.

Og ég vona að sem allra flestir mæti.

Síðast var þagað í sautján mínútur, til minningar um þau sautján ár sem Sjálfstæðisflokkurinn hefði setið við völd.

Það var áhrifamikil stund.

Nú á að þegja í ellefu mínútur.

Fyrir Framsóknarflokkinn.

Ætli það endi í einni og hálfri fyrir Samfylkinguna?!

En mætum endilega!


- - -


Síðari viðbót:

Þessar ellefu mínútur voru náttúrlega ekki til heiðurs Framsóknarflokknum, enda sat hann við völd í tólf ár eins og bent hefur verið á og ég átti að vita.

Þetta voru þær ellefu vikur sem liðnar eru frá hruninu, þær ellefu vikur sem fundir hafa verið haldnir á Austurvelli.

Og þetta var fín stund, en ég missti af því að skóm væri kastað í þinghúsið.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?