ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.3° 8m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

FULLVALD, EKKI FULLVELDI

09:03 › 2. desember 2008


Styrmir Gunnarsson hélt að sögn ástríðuþrungna ræðu í gær þar sem hann harðbannaði okkur að ganga í Evrópusambandið.

Það væri svo hörmuleg skerðing á fullveldi okkar.

Í tilfelli Styrmis ætti kannski frekar að nota "fullvald" en "fullveldi".

Því Styrmir hefur gífurlegan áhuga á valdi.

Hann þráði vald fyrir sjálfan sig og reyndi að safna eins miklu af því og hægt var bak við luktar dyr á skrifstofunni sinni á Mogganum.

Þegar svo bjátaði á gerðist hann innmúraður og innvígður þjónn hins Æðsta Valds.

Til að geta haldið áfram að beita valdi bak við luktar dyr, þó ekki væri það hans eigið.

Þegar valdafíknir menn eins og Davíð og Styrmir skipa sér fremst í röð andstæðinga ESB, þá eru það ótvíræð meðmæli með Evrópusambandinu.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?