Hvernig vogar Geir Hilmar Haarde sér að svara engu þegar hann er spurður um ummæli Seðlabankastjóra um að hann "viti" af hverju Bretar beittu hryðjuverkalögunum?
Þetta er gríðarlega mikilvægt og afdrifaríkt mál, sem valdið hefur íslensku þjóðinni ógnarlegu tjóni, og einn æðsti embættismaður ríkisins hefur komið fram opinberlega og sagst vita skýringuna á hryðjuverkalögunum.
En Geir "svarar engu", svona rétt eins og þegar heimilisfaðir "svarar engu" eftir fermingarveislu þegar hann er spurður um hvað fulli frændinn hafi verið að delera í veislunni.
Heimilisfaðirinn vonast til að þessi veisluskandall gleymist bara.
Með því að neita að ræða fulla frændann gefur heimilisfaðirinn til kynna að þetta hafi aldrei gerst. Hann sjálfur taki amk enga ábyrgð á þessu.
En við erum ekki í veislu, við erum þvert á móti stödd í miðju þjóðarhruni.
Og það er ekki Geir Hilmar sem á veisluhúsnæðið þar sem nú er allt í rúst.
Við erum hins vegar með Geir í vinnu.
Svo honum ber einfaldlega skylda til að svara spurningum okkar.
Blogg
ÞEGAR FULLI FRÆNDINN DELERAR Í VEISLUNNI
12:38 › 2. desember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
