ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.3° 8m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

SORGLEGT BRÉF

16:09 › 2. desember 2008


Ég fékk bréf í dag. Alvöru handskrifað bréf í umslagi.

Því miður var efni bréfsins ekki gleðilegt.

"Illugi Jökulsson!

Ég heyrði nokkur orð af ræðu þinni í sjónvarpinu af útifundinum [á Austurvelli] í Reykjavík í dag [laugardag].

Ég skil að þú viljir sjá foreldra leggjast á koddann að kvöldi með fjölskyldu sinni og vakna áhyggjulítil að morgni.

Ég, gömul kona, leggst á koddann minn á kvöldin með miklar peningaáhyggjur og vakna að morgni með enn meiri áhyggjur.

Sé vart úr úr ört vaxandi vöxtum og verðbótum af veði sem ég lánaði dóttursyni mínum, er hann fór til náms erlendis.

Hann á ekki neitt nema konu og tvö ung börn.

Ég átti skuldlausa íbúð í blokk og lánaði veð í henni, [fyrir] 9 milljónir í apríl 2007 en íbúðin var metin á tæpar 16 milljónir.

Nú er öll íbúðin komin í skuld vegna hraðvaxandi vaxta og verðbólgu.

Hvernig er líðan hennar [gömlu konunnar]?

Áhyggjulaust æfikvöld?

Var þetta [það] sem koma átti fyrir eldra fólk, auk barna og allra þeirra sem tapað hafa háum upphæðum fjár?

Gamla konan var búin að spara alla sína æfi sem er orðin 81 ár.

Ánægjuleg jól framundan!"






ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?