Ég hitti Sæmund Pálsson eða Sæma rokk í heita pottinum í Vesturbæjarlauginni áðan.
Sæmundur hefur það sér til mikils ágætis að hann hefur engan áhuga á að tala um kreppuna.
Í þetta sinn lýsti hann sérstakri ánægju með að Barack Obama skuli hafa valið Hillary Clinton í embætti utanríkisráðherra.
Sæmi hefur nefnilega trú á Hillary.
Hann hefur margoft staðið í og stýrt heiðursverði lögreglumanna fyrir "heldri menn" eða þegar svonefnda "tigna gesti" ber að garði, enda með vörpulegri mönnum.
Enginn þessara "heldri manna" eða "tignu gesta" hefur séð ástæðu til að sýna heiðursverðinum minnstu kurteisi, nema Kristján Eldjárn sem var einstakur að þessu leyti.
Og svo Hillary Clinton.
Sæmi stóð oft og gerði hönnör þegar Hillary var gestur á ráðstefnu í háskólanum um árið.
Og þegar ráðstefnunni var að ljúka gaf Hillary sig á tal við Sæma og þakkaði honum kærlega varðstöðuna.
Þetta sýnir að Hillary Clinton tekur eftir hlutum í kringum sig.
Og er ekki verri mælikvarði en ýmsir aðrir á hverjir hafa raunverulega hæfileika.
Blogg
SÆMI ROKK ER ÁNÆGÐUR MEÐ VAL OBAMA Á HILLARY CLINTON
19:29 › 2. desember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
