Þegar ég var að vaxa úr grasi (svona um og upp úr 1970) lærði ég utanbókar ýmsan viðtekinn sannleika sem ég trúði síðan næstu 20-30 árin.
1.
Á Íslandi er besta menntakerfi í heimi.
Það reyndist vera tóm vitleysa þegar fréttir komu frá Singapúr.
2.
Á Íslandi er besta heilbrigðiskerfi í heimi.
Hvernig það álit stenst tímans tönn er upp og ofan.
3.
Á Íslandi er engin stéttaskipting.
Þessu trúði ég eins og nýju neti á árunum upp úr 1970. Undarlegt. En gamla valdastéttin var þá reyndar farin að hafa vit á að láta lítið á sér bera.
4.
Á Íslandi er engin fátækt.
Þegar þessi trú festist í kollinum á mér voru í hæsta lagi 5 ár síðan hin ömurlegu braggahverfi lögðust af.
5.
Á Íslandi er besta vatn í heimi.
Leiddi ekki einhver rannsókn í ljós að vatnið hér væri það 19. besta í heimi?
6.
Morgunblaðið er besta dagblað í heimi.
Hahahahaha!
Blogg
MOGGINN ER BESTUR
10:22 › 2. desember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
