17:33 › 2. desember 2008
Síðan ég fór að skrifa nokkuð reglulega á þessa hér bloggsíðu, þá hefur vafist æ meira fyrir mér hvaða orð skuli nota um það sem maður skrifar hér.
Orðin "færsla" eða "bloggfærsla" eru ómöguleg.
"Pistill" passar ekki alveg.
"Orðsending" er aðeins of langt, líklega. Þó kann ég sæmilega við það.
Má ég biðja um tillögur?
Og þá líka, hvað á að kalla "kommentin" í "kommentakerfinu"?
Við hljótum að geta fundið almennileg lipur íslensk orð yfir þetta.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
