ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.3° 8m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

1,3 TONN AF SVÖRTUM LEÐURSÓFASETTUM!

14:58 › 2. desember 2008


Við á bókaforlaginu Skugga erum alveg á nippinu þessi dægrin.

Okkar aðalbók, Saga mannsins frá örófi fram á þennan dag, er komin út og hefur fengið frábæra dóma.

Enda held ég þetta sé fín bók. Fyrsta sendingin er alveg að klárast í bókabúðunum.

Bókin var prentuð í Kína og þessa fyrstu sendingu fengum við með flugi. Afgangurinn af upplaginu hefur svo verið á leiðinni til okkar með skipi.

Ég skal viðurkenna að ég var svolítið nervus um þær mundir sem ég reiknaði út að skipið með bókunum væri líklega statt undan ströndum Sómalíu.

En skipið slapp við sjóræningja og bókunum var umskipað í Amsterdam.

Vonum við!

Þegar við höfðum samband við skipafélagið og vildum ganga endanlega úr skugga um að bækur Skugga forlags væru um borð, þá fengum við eftirfarandi svar:

"Ha, jú, við vorum að athuga pappírana okkar. Og jújú, vissulega er þar sending merkt Skuggi forlag. En hér stendur að þetta séu 1,3 tonn af ... svörtum leðursófasettum."



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?