Ég rumska yfirleitt rétt upp úr klukkan hálfátta á morgnanna, nokkrum mínútum áður en vekjaraklukkan hringir. Milli svefns og vöku skautar hugurinn - nauðugur viljugur - yfir eins konar "fréttatíma" um nýjar hörmungar í kreppunni.
Nú í morgun bættist það við kreppufréttirnar að nýjar rannsóknir hefðu sýnt að ekki væru nema 122 hagamýs eftir á landinu.
Það fannst mér helvíti langt gengið og þvingaði sjálfan mig til að vakna til fulls og hætta þessu rugli.
Í blöðunum eru sem betur fer engar slæmar fréttir af hagamúsum, en hins vegar virðist síldarstofninn vera fárveikur.
Jæja!
Blogg
122 HAGAMÝS
07:36 › 2. desember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
