ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.3° 8m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

KOMMISSARINN KEMUR

08:17 › 19. desember 2008


Menn eru að kasta á milli sín þeirri hugmynd að kalla væntanlegan fastafulltrúa Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á Íslandi "landstjóra".


Guðmundur Magnússon ritstjóri Eyjunnar nefnir þetta til dæmis og finnst það greinilega ekki tilhlökkunarefni.

Sennilega verður viðhorfið til AGS mikið deiluefni hér á næstunni.

Sumir munu eflaust vilja kenna AGS um þann niðurskurð sem hér er þegar hafinn, sjá t.d. lúgugrein Árna Daníels Júlíussonar á Eyjunni.

Og enn meiri niðurskurður í vændum.

Þeir munu vafalaust vilja tala um "landstjóra AGS".

Á hinn bóginn ítrekar Þorvaldur Gylfason hagfræðingur þá skoðun sína í DV í morgun að við getum alls ekkert annað gert en farið eftir ráðleggingum AGS og hann gagnrýnir raunar þá aðila hérlendis (í Seðlabankanum aðallega) sem framkvæmi ráð (eða fyrirmæli) AGS með "hangandi hendi".

Það sé bara ávísun á að lán til okkar muni þorna upp.

Fastafulltrúi AGS verður því án efa mjög umdeildur, hvað svo við komum til með að kalla hann.

Ætli "kommissar" verði ekki bara ofan á?

Þrautreynt starfsheiti úr rússnesku byltingunni!



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?