10:29 › 19. desember 2008
Fram til þessa hefur mér alltaf þótt það einhver skelfilegasta tilhugsun sem ég get ímyndað mér að börnin mín flyttu úr landi.
Það er að segja varanlega.
Auðvitað hefur mér alltaf fundist að þau ættu að hleypa heimdraganum og skoða sig um í veröldinni.
En svo hefur mér alltaf þótt mikilvægt að þau kæmu heim aftur.
Þetta snýst, skiljiði, eitthvað um Ísland ....
En nú er ég ekki lengur viss.
Ég verð hér vitaskuld til æviloka og reyni að leggja mitt af mörkum til að klóra okkur út úr þessu messi.
En þau?
Æ, nú eru runnar á mig tvær grímur.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
