ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.3° 8m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

ENGIN RÆTNI Í SKAKKA TURNINUM

13:59 › 19. desember 2008


Egill Helgason hefur birt á síðu sinni bréf eftir Bjarna Brynjólfsson fyrrum ritstjóra Séð og heyrt sem fjallar um meint og raunveruleg ítök Baugsmanna í íslenskum fjölmiðlum.

Þar á meðal í tímaritaútgáfunni Birtíngi.

Þar nefnir Bjarni á einum stað mitt góða blað SKAKKA TURNINN og segir eitthvað á þá leið að meira að segja í þessu blaði, sem ætlað sé börnum og unglingum, hafi birst rætnar greinar um Davíð Oddsson.

Kannski skiptir það ekki miklu máli en ég get samt ekki á mér setið að leiðrétta þetta.

Þetta er nefnilega alrangt.

Í fyrsta lagi er SKAKKI TURNINN alls ekki blað fyrir börn og unglinga. Víst höfum við orðið vör við að unglingar og jafnvel börn hafi gaman af ýmsu efni blaðsins, en það er hreint ekki sérstaklega ætlað þeim.

Í öðru lagi held ég að mér sé óhætt að fullyrða að aldrei hafi verið minnst á Davíð Oddsson í greinum blaðsins. Ég man a.m.k. ekki til þess og hafi það verið gert hefur það verið í algjöru framhjáhlaupi.

Hins vegar er í blaðinu síða sem oftast heitir "Í fullkomnum heimi" þar sem við leikum okkur að því að skrumskæla veröldina svolítið, söguna og/eða nútímann. Þetta er gert myndrænt, og á góðlátlegan og vonandi grínaktugan hátt.

Davíð hefur tvisvar verið viðfangefni þessarar síðu. Í vor birtum við mynd af honum í líki rómversks ræðismanns, í sama stíl og veggmyndirnar í Pompei. Núna í haust - eftir hrunið - birtum við aftur á móti mynd af stalli myndastyttu sem merkt var "Davíð Oddsson forsætisráðherra" en stallurinn var tómur.

Þetta átti að sýna að í því andrúmslofti sem þá ríkti yrði líklega bið á því að stytta yrði reist af Davíð, hvað sem síðar yrði.

"Rætið" var þetta a.m.k. ekki.

Meðal þeirra sem við höfum hent góðlátlegt gaman að á þessum "fullkomnu" síðum eru Móna Lísa, Ólafur Ragnar Grímsson, Skarphéðinn úr Njálssögu og nú síðast Össur Skarphéðinsson sem birtur var í mynd olíumálaráðherra.

Þetta fannst mér rétt að kæmi fram.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?