ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.3° 8m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

"ELTIÐ PENINGASLÓÐINA"

13:10 › 19. desember 2008


Mark Felt er dáinn en hann varð frægur sem heimildarmaður bandarísku rannsóknarblaðamannanna Woodwards og Bernsteins í Watergate-hneykslinu.

Felt var embættismaður sem ofbauð framferði sem hann varð vitni og veitti því blaðamönnunum upplýsingar á laun.

Þeir kölluðu hann Deep Throat, sem var nafn á alræmdri klámmynd, og lengi á eftir var það einn mesti leyndardómur bandarískrar blaðamennsku hver Deep Throat hefði í raun verið.

Nú þurfum við á  Djúphálsum að halda á Íslandi, helst mörgum - bæði úr ranni auðkýfinganna, stjórnvaldanna og embættismannakerfisins.

Líklega yrðu ráðleggingar hinna íslensku Djúphálsa til fjölmiðlamanna hér einmitt þau sömu og Mark Felt brýndi stöðugt fyrir Woodward og Bernstein:

"Follow the money. Eltið peningaslóðina."

En áður en Djúphálsar þora upp á yfirborðið þurfum við líklega fjölmiðla sem hegða sér á ábyrgan hátt en eru ekki eins og hýenur bítandi hver aðra á barkann.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?