Í gær var ég að furða mig á að nauðsynlegur niðurskurður opinberra útgjalda skyldi strax hafa komið niður á geðveikum börnum á Akureyri.
Og stakk upp á að eins og eitt sendiráð yrði lagt niður, frekar en horfast í augu við þau ósköp.
Ég ætla að ítreka þá tillögu hér.
Ingibjörg Sólrún var fyrst ráðherra til að kynna sparnaðartillögur í nóvember, en þegar að var gáð voru þær ekki síst í því fólgnar að hætta við að auka útgjöldin.
Raunverulegur niðurskurður var lítill.
Í mörg herrans ár hef ég skrifað á móti öllum þessum fjölda af sendiráðum sem við rembumst við að halda úti.
Fáir tóku undir. Halldór Ásgrímsson spurði alltaf: "Hvernig skilaboð erum við að senda þjóðum ef við leggjum niður sendiráð okkar í löndum þeirra?"
En nú er brýnt að gera þetta. Og mér er bara alveg sama hvaða skilaboð við sendum.
Það skiptir meira máli að geðsjúk börn fái þjónustu en að fáeinir rykfallnir embættismenn fyrtist við af því þeir missa eina umferð af kokkteilboðum í hinum ónauðsynlegu sendiráðum okkar.
Blogg
BURT MEÐ ÖLL ÞESSI SENDIRÁÐ STRAX
11:49 › 19. desember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
