ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.3° 8m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

AUÐLINDIRNAR NÆSTAR

13:38 › 19. desember 2008


Ég rakst á vefslóð á fræga grein í Wall Street Journal frá 29. janúar 2004. Hún er eftir Hannes Hólmstein Gissurarson og birtist hér.

Sjálfsagt er til íslensk þýðing á henni einhvers staðar á netinu, en þarna dásamar Hannes þá paradís frjálshyggjunnar sem Ísland sé orðið eftir "sams konar breytingar og í Bretlandi Thatchers, Nýja Sjálandi og Chile".

Þessari grein er rétt að halda til haga svo það gleymist ekki hvaða pólitík það var sem ber ábyrgð á þeirri óheftu nýfrjálshyggju er sleppti ábyrgðarlausum kaupsýslumönnum og jafnvel hreinum glæpamönnum lausum og setti landið okkar á hausinn.

Í greininni kemur líka fram hvað næst var á dagskrá: "En margt er enn ógert. Heilbrigðiskerfið og menntakerfi eru rekin af hinu opinbera, sem og ýmsar fleiri stofnanir, nokkrar ljósvakastöðvar og vatnorkukerfið. Fólk sem stendur nærri Mr. Oddssyni er þeirrar skoðunar að tvö helstu verkefnin séu að lækka tekjuskatt einstaklinga og skýra og styrkja einkaréttinn, bæði til fjármagns og auðlinda."

Ef einhver veit um fullkomnari þýðingu en þessa lauslegu þýðingu mína, þá væri það vel þegið.

Þetta er grein sem á skilið að varðveitast.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?