Í nýju hefti af Sögunni allri eru greinar um allt mögulegt, frá Örlygsstaðabardaga til Jack the Rippers til Adolfs Hitlers og kampavíns.
En aðalgreinin er um Pál postula.
Hann var mjög sérkennilegur maður. Tók kenningu Jesúa frá Nasaret og mótaði í sannkölluð trúarbrögð. Sumir telja jafnvel að hann hafi afbakað kenningu Jesúa í leiðinni.
Hann er alræmdur fyrir orð sín um að konur skuli þegja á samkomum, hann skipaði þrælum að vera húsbændum sínum þægir og með siðavendni sinni átti hann eflaust mikinn þátt í því hvað viðhorf kristinna Vesturlandabúa til kynlífs varð blandið mikilli sekt og skömm.
En á sama tíma samdi hann eða tók a.m.k. saman fallegri boðskap um kærleikann en flest það sem haft er eftir Jesúa sjálfum.
Það er hinn víðfrægi 13. kapítuli Fyrra Korintubréfs, ljóðið um kærleikann.
Sem á alltaf vel við, en kannski ekki síst núna!
- 1 Þótt ég talaði tungum manna og engla,
- en hefði ekki kærleika,
- væri ég hljómandi málmur eða hvellandi bjalla.
- 2 Og þótt ég hefði spádómsgáfu
- og vissi alla leyndardóma og ætti alla þekking,
- og þótt ég hefði svo takmarkalausa trú, að færa mætti fjöll úr stað,
- en hefði ekki kærleika,
- væri ég ekki neitt.
- 3 Og þótt ég deildi út öllum eigum mínum,
- og þótt ég framseldi líkama minn, til þess að verða brenndur,
- en hefði ekki kærleika,
- væri ég engu bættari.
- 4 Kærleikurinn er langlyndur, hann er góðviljaður.
- Kærleikurinn öfundar ekki.
- Kærleikurinn er ekki raupsamur, hreykir sér ekki upp.
- 5 Hann hegðar sér ekki ósæmilega, leitar ekki síns eigin,
- hann reiðist ekki, er ekki langrækinn.
- 6 Hann gleðst ekki yfir óréttvísinni, en samgleðst sannleikanum.
- 7 Hann breiðir yfir allt, trúir öllu, vonar allt, umber allt.
- 8 Kærleikurinn fellur aldrei úr gildi.
- En spádómsgáfur, þær munu líða undir lok,
- og tungur, þær munu þagna, og þekking, hún mun líða undir lok.
- 9 Því að þekking vor er í molum og spádómur vor er í molum.
- 10 En þegar hið fullkomna kemur, þá líður það undir lok, sem
- er í molum.
- 11 Þegar ég var barn, talaði ég eins og barn,
- hugsaði eins og barn og ályktaði eins og barn.
- En þegar ég var orðinn fulltíða maður, lagði ég niður barnaskapinn.
- 12 Nú sjáum vér svo sem í skuggsjá, í ráðgátu,
- en þá munum vér sjá augliti til auglitis.
- Nú er þekking mín í molum,
- en þá mun ég gjörþekkja, eins og ég er sjálfur gjörþekktur orðinn.
- 13 En nú varir trú, von og kærleikur, þetta þrennt,
- en þeirra er kærleikurinn mestur.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
