ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.3° 8m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

KREPPA Í KARDIMOMMUBÆ

08:33 › 18. desember 2008


Á eftir er ég að fara á jólaskemmtun í Austurbæjarskólanum þar sem m.a. verða flutt atriði úr Kardimommubænum.

Níu ára sonur minn ætlar að spreyta sig sem Jónatan ræningi.

Hann er svo spenntur að hann sofnaði ekki fyrr en klukkan ellefu í gærkvöldi og vaknaði klukkan sex í morgun.

Iðandi af áhyggjum yfir því hvort hann myndi muna textann sinn.

Texta sem Torbjörn Egner mundi reyndar ekki að öllu leyti kannast við.

Því það er búið að breyta texta Kardimommubæjarins heilmikið.

Þar er líka kreppa. Síðasti Pólverjinn er að tygja sig til farar.

Sá er þó munurinn á þessari kreppu í Kardimommubæ og kreppunni okkar að í Kardimommubæ ætla ræningjarnir að taka þátt í uppbyggingarstarfinu.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?