ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.3° 8m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

ÉG TREYSTI ÞEIM EKKI

10:41 › 18. desember 2008


Á bloggsíðu Sigurjóns M. Egilsson kemur fram að Poul Thomsen fulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins segi stöðu Íslands með því versta sem hann hafi séð.

"Og hefur hann þó áralanga reynslu af störfum meðal þjóða í fjárhagsvanda," eins og SME segir.

Á næstu vikum eigi staða okkar eftir að versna og meiri vandi koma í ljós og enginn muni vilja lána okkur pening.

En hvaða fólk er það sem er í brúnni í efnahagsmálum og á að reyna að bjarga okkur úr þessari ömurlegu stöðu?

Geir Haarde.

Árni Mathiesen.

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.

Björgvin G. Sigurðsson.

Davíð Oddsson.

Þið fyrirgefið, en jafnvel þó ég efist ekki um góðan vilja alls þessa fólks til að gera sitt besta, þá treysti ég þeim ekki.

Af því ég held þau kunni þetta ekki.

Við verðum að fá hjálp.







ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?