Það gleður mig vitaskuld hvað gagnrýnandinn Sigurður Mikael Jónsson skrifar fallega í DV í dag um bókina Velkomin til Íslands sem Skuggi gefur út nú fyrir jólin eftir Ragnhildi Sverrisdóttur.
Þetta er sagan um Sri Rahmawati sem féll fyrir hendi morðingja 2004.
Hann segir að þetta sé "gríðarlega mikilvæg bók fyrir allar þær konur sem eru í sömum sporum [fastar í ofbeldissambandi], fastar í álögum hótana og ofbeldis sambýlismanna sinna ... Þetta er bókin sem ofbeldismennirnir vilja ekki að fórnarlömb sín lesi."
Og svo: "Góð lesning og mikilvæg. Feikilega áhrifamikil frásögn af einu hrottalegasta morði Íslandssögunnar."
Áður hafði Jenný Anna skrifað fallega um bókina á bloggsíðuna sína.
Ég er alveg sammála því að þetta sé nauðsynleg og áhrifamikil bók. Þess vegna gefum við hana út.
Blogg
BÓK SEM GÆTI BJARGAÐ LÍFUM
11:57 › 18. desember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
