ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.3° 8m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

"SEM EINN MAÐUR!"

14:09 › 17. desember 2008


Þegar áföll dynja yfir hóp af fólki þjappar hópurinn sér saman.

Og hjálpast að.

Langoftast, að minnsta kosti.

Þetta er bara mannlegt viðbragð, sem gildir um alla menn.

Þess vegna hefur mér alltaf þótt dálítið fyndið þegar fólk segir: "Það er einkenni okkar Íslendinga að þegar mest á reynir, þá erum við sem einn maður."

Því nákvæmlega það sama má segja um allar aðrar þjóðir. Þetta er alls ekki bara einkenni okkar Íslendinga.

Ég held að stjórnvöldin í landinu hafi ætlað að nota sér þessa samstöðuhvöt eftir bankahrunið. Til að setja lokið á tunnuna eins og ég nefndi í síðasta pistli.

En þótt þessi hvöt sé sterk, þá endist hún bara í ákveðinn tíma.

Ef hún fær ekkert að nærast á.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?