23:50 › 17. desember 2008
Ég heyrði í tíufréttum Sjónvarpsins að á borgarafundinum í kvöld hafði verið spurt:
"Var einhver ástæða til þess að keppa að því að Ísland yrði ríkasta land heims?"
Eða hvernig sem það var orðað.
Þetta er ágæt spurning, og furðu óvænt.
Hún hafði satt að segja ekki einu sinni hvarflað að mér.
Ef ég hefði verið spurður:
"Vilt þú verða ríkasti maður heims?"
- þá hefði ég ekki svarað fyrirvaralaust "já".
En mér datt eiginlega ekki í hug að efast um að rétt væri að sækjast eftir því að Ísland yrði ríkasta land í heimi.
Það hlaut að vera gott í sjálfu sér.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
