11:10 › 17. desember 2008
Alveg frá blábyrjun bankahrunsins hafa allir aðilar staglast á einu.
Þetta mál verður rannsakað.
Í þaula.
Hverjum steini verður snúið við.
Framan af virtust allir sammála um að þessi rannsókn yrði að vera á forræði útlendinga.
Svo drógu stjórnarliðar í land með það.
Núna lítur út fyrir að einhvern tíma hugsanlega kannski verði skipuð rannsóknarnefnd undir forræði þriggja Íslendinga.
Einhvern tíma.
Hvað heldur fólk að mikið af mikilvægum gögnum hafi glatast á þeim tíma sem liðinn er?



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
