ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.3° 8m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

GLÖTUÐ TÆKIFÆRI

13:10 › 17. desember 2008


Forkólfar ríkisstjórnarinnar leggja allt kapp á að róa niður alla óánægju.

Einfaldasta skýringin á því er náttúrlega sú að stjórnmálamennirnir séu hræddir við kjósendur sína.

Óttist að hrökklast frá völdum.

En þar sem ég vil helst ekki ætla fólki illt, þá skulum við segja að ástæðan sé frekar ótti við að allt fari í bál og brand í samfélaginu.

En sú gríðarlega áhersla sem lögð er á að bæla niður óánægju og setja lok á öskutunnurnar með brunarústunum hefur ekki aðeins þær afleiðingar að grunsemdir vakna um mistök og jafnvel misferli í miðjum "björgunaraðgerðunum".

Heldur líka að alls konar frumleg og djörf hugsun kemst ekki upp á yfirborðið.

Tækifæri glatast á hverjum degi til að hugsa hluti upp á nýtt.

Í þessu ástandi á að hlusta á allar raddir, ekki reyna að loka þær úti.

Nýjar raddir, nýja hugsun - þetta þarf hvorttveggja, svo hægt sé að búa til eitthvað nýtt, en ekki einungis hina gömlu valdhafa að bjarga því sem bjargað verður.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?