Það liggur við að ég biðjist afsökunar á að skrifa hér eitthvað persónulegt þegar mörg mikilvæg mál bíða úrlausnar, en áðan var ég úti í búð og þurfti að gefa upp nafnið mitt.
Og afgreiðslumaðurinn hnyklaði brúnir og sagði: "Heyrðu, ert þú ekki maðurinn sem skrifaði Barnið mitt barnið?"
Mig rak aldeilis í rogastans.
"Barnið mitt barnið" er skáldsaga sem ég skrifaði fyrir eitthvað um 15 árum. Hún átti sér nokkra mjög góða aðdáendur en þeir voru bara ekkert sérlega margir.
Sagan fór framhjá flestum, mörgum fannst hún einkennileg og sögðu í besta falli: "Virðingarverð tilraun", en í versta falli: "Hvaða rugl?"
En þar sem hún var, hvað sem öðru leið, skrifuð með hverjum dropa af mínu hjartablóði, þá hefur mér alltaf þótt undur vænt um hana.
En nefni hana aldrei við nokkurn mann og hef ekki þorað að líta í hana síðan hún kom fyrst út.
Svona verður Vöggur litlu feginn, þessi athugasemd afgreiðslumannsins bjargaði alveg hjá mér deginum.
Blogg
BARNIÐ MITT BARNIÐ
17:01 › 17. desember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
