ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.3° 8m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

ROSABAUGUR

15:51 › 16. desember 2008


Stjörnuskoðunardeild Trésmiðjunnar hefur borist fyrirspurn:

"Af hverju stafa rosabaugar kringum sólina og tunglið?"

Það fylgir fyrirspurninni að hér sé á engan hátt átt við Baug Group!

Heldur sé spurningin einfaldlega sprottin af einum rosalegum rosabaug sem sást kringum tunglið í Trékyllisvík á Ströndum á föstudaginn var.

Eins og þegar hefur verið vakið athygli á hér var tunglið óvenju glæsilegt á föstudaginn og rosabaugurinn í Trékyllisvík var víst með hreinum ólíkindum er tunglið gægðist yfir öxlina á Finnbogastaðafjalli.

Eftir að Trésmiðjan hafði látið greipar sópa um Vísindavef Háskóla Íslands var barið saman þetta svar:

Ástæða rosabaugs er ljósbrot í ískristöllum í háskýjum, oftast blikuskýjum. Baugarnir sjást þess vegna eingöngu ef einhver skýjahula er á himni.

Ískristallar eru sexhyrndir og er ljós fer í gegnum þá breytir það um stefnu, oftast um 22 gráður, og því myndast hringur í 22 gráðu fjarlægð frá tungli eða sól á himni.

Rosabaugar sjást fremur kringum sólina en tunglið af þeirri einföldu ástæðu að hún er miklu bjartari.

Birtan frá tunglinu er hins vegar langmest þegar máninn er fullur, og því sést oftast rosabaugur kringum fullt tungl.

Ekki ber að rugla rosabaugum saman við litbauga við tungl. Þeir eru mun minni og stafa af litbeygingu í vatnsdropum, eins og allir vita.

(Myndin hér að ofan er af rosabaug sem einu sinni náðist mynd af í San Sebastian á Spáni.)



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?