Ég vona ekki.
Ég trúði Reyni Traustasyni af því ég átti mjög bágt með að trúa því að DV hefði sætt hótunum út af ekki merkilegra tilefni en þarna var á ferðinni.
Menn hóta væntanlega fyrst og fremst af því þeir vilja ekki að eitthvað nýtt fréttist. En síður út af frétt sem þegar er komin fram í dagsljósið.
Ég átti hins vegar líka mjög bágt með að trúa því að blaðamaðurinn Jón Bjarki væri að ljúga og tók það fram frá byrjun. Ég hugsaði með mér að þetta hlyti að vera fyrst og fremst einhver undarlegur misskilningur.
Því miður laug Reynir.
Ég baðst umsvifalaust afsökunar á að hafa trúað honum, ég vona að ég hafi kveðið nógu skýrt að orði.
Eftir sem áður á ég frekar bágt með að trúa því að Reyni hafi raunverulega verið hótað í einhverri alvöru. Um það get ég þó auðvitað ekki vitað. En Reynir kaus að láta blaðamanninn trúa því.
Þar með voru orð Jóns Bjarka sönn en orð Reynis lygi.
Ég get ekki annað en ítrekað afsökunarbeiðni mína.
Blogg
ER MINN TRÚVERÐUGLEIKI Í RÚST?
09:53 › 16. desember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
