Nú hafa ráðamenn þjóðarinnar haft tvo og hálfan mánuð til þess sem þau kalla jafnan "björgunaraðgerðir".
Ég fæ því miður ekki séð að miklu hafi verið bjargað.
Þvert á móti má auðveldlega telja upp hvert klúðrið upp af öðrum í þessum "björgunaraðgerðum".
Fyrir nú utan að þeim er stýrt af alveg sama liðinu og keyrði okkur upp í "brimskaflinn", sem líka var tískuorð á tímabili.
Og þessu liði þykir það ekki tiltökumál.
Þótt á skipi sem keyrði upp í brimskafl á fullri ferð væri löngu búið að skipta um skipstjóra.
En látum það vera að sinni. Nú verður ekki lengur undan því vikist að ríkisstjórnin - sem við losnum greinilega ekki við næstu mánuði - GERI EITTHVAÐ í málefnum þess fólks sem verður gjaldþrota á næstu mánuðum.
Annað en að leyfa þeim sem verða gjaldþrota að leigja áfram húsnæði sitt fyrsta kastið, eins og var svo vinaleg ráðlegging Össurar Skarphéðinssonar á Háskólabíósfundinum.
Eða er það eina ráðið.
Aðild að ESB mun ekki koma þeim sem verða gjaldþrota á næstunni til góða. Né evran. Þaðan af síður olían hans Össurar.
En HVAÐ Á AÐ GERA?
Blogg
HVAR ERU ÞESSAR "BJÖRGUNARAÐGERÐIR"?
07:09 › 15. desember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
