Þessi athugasemd Björgvins Vals er réttmæt.
Ef landsfundur Sjálfstæðisflokksins leggst gegn umsókn um aðild að ESB, munu þá þingmenn flokksins lúffa fyrir landsfundinum og greiða atkvæði gegn umsókn ef tillaga um slíkt kemur fram á Alþingi?
Annars sýnist mér allt stefna í að landsfundurinn hljóti að samþykkja umsókn.
Enda er það eina skynsamlega leiðin í stöðunni, meira að segja sé maður á móti ESB. Því þetta mál þarf að afgreiða, til eða frá, eins og ég þreytist ekki á að taka fram.
Geir Haarde var meira að segja farinn að segja frekar hæðnislega að þeir sem ekki yrðu sáttir við niðurstöðuna gætu bara drifið sig í VG.
Það held ég hafi nú varla fallið vel í kramið hjá Heimastjórnarflokknum.
Blogg
HEIMASTJÓRNARFLOKKNUM ÖGRAÐ
11:46 › 15. desember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
