ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.3° 8m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

ÉG TRÚI REYNI ...

09:48 › 15. desember 2008


... ritstjóra á DV þegar hann segir að ástæðan fyrir því að fréttin um Sigurjón fyrrum bankastjóra Landsbankans birtist EKKI í DV hafi verið sú að ekkert nýtt hafi verið í henni.

Þetta hafi verið ósköp venjuleg ritstjórnarleg ákvörðun um að eltast ekki við fréttir sem þegar voru komnar fram annars staðar.

Þegar að er gáð var þetta nefnilega allt saman komið fram áður en Jón Bjarki blaðamaður skrifaði sína frétt, einkum á Eyjunni.

Þótt ég hefði sem ritstjóri birt fréttina, einfaldlega af því blaðamaðurinn náði að hafa nokkur orð eftir Sigurjóni sem Eyjan gerði ekki. En þau orð sögðu vissulega í sjálfu sér ekkert nýtt.

Það voru altso engin "skúbb" í þessu sem þurfti að stoppa.

Þá standa eftir orð blaðamannsins um að Reynir hafi sagt honum að "stórir aðilar" úti í bæ hafi stoppað fréttina.

Þó ég skrúfi samsærishnappinn í botn get ég ekki almennilega komið því heim og saman að einhverjir "stórir aðilar" hafi farið að leggja þunga áherslu (jafnvel svo líf blaðsins lægi við) á að akkúrat DV birti ekki frétt sem þegar var meðal þeirra víðlesnustu á netinu og afar umtöluð í samfélaginu.

Og þar á ofan frétt sem gekk, frá hendi blaðamannsins, alls ekki nærri hvorki Sigurjóni né Landsbankanum né nokkrum manni.

Þetta var svona vinalegt hjal um það sem allir vissu þá þegar.

Hverjir hefðu þessir "stóru aðilar" átt að vera? Nýi Landsbankinn? Af því hann skammaðist sín fyrir að Sigurjón væri enn á fullu í húsnæði bankans? Jón Ásgeir? Af því að hann ... hvað?

Vildi ekki láta fréttast að Sigurjón væri hugsanlega að vinna að einhverju leyti fyrir hann?

Æ, ég held varla.

Með fullri virðingu fyrir DV: Ég held að hvorugur aðili hefði látið sig miklu varða það sem Jón Bjarki hafði eftir Sigurjóni.

OG umfram allt, allt sem fram kom í fréttinni var þegar komið fram, skýrt og skilmerkilega; það er alveg rétt hjá Reyni.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?