Svo virðist sem ég hafi haft algjörlega fullkomlega kolrangt fyrir mér.
Einhver hafi vissulega orðið brjálaður út af hinni meinlausu frétt um Sigurjón Árnason og Landsbankann.
Og kvartað við DV yfir því að blaðamaður væri að tala við hann.
Eitthvað mjög furðulegt virðist hafa gerst úr því veður var gert úr þessu algjöra smámáli.
Svo miklu smámáli að ég trúi því varla enn að það hafi átt sér stað.
En það virðist hafa verið Björgólfur Guðmundsson sem á eða átti prentsmiðjuna þar sem DV var eða er prentað.
(Síðari viðbót: Best að hnykkja á því að eftir því sem tíminn líður verður æ augljósara að hafi Reynir sætt einhverjum hótunum, þá er eiginlega nær útilokað að þær hafi komið frá Björgólfi. Held ég!)
Og Reynir Traustason ritstjóri DV hafi ákveðið að láta undan og birta fréttina ekki, af því þetta væri slíkt smámál að ekki tæki því að láta brjóta á því.
Alvarlegast fyrir Reyni er auðvitað að hafa þrætt fyrir tiltækið.
Og látið líðast að menn eins og ég héldu uppi vörnum fyrir hann!
Fussumsvei!
Sem betur fer hélt ég því reyndar hvergi fram að Jón Bjarki væri að ljúga. En ég hélt í fyllstu einlægni að þetta hlyti að vera einhver misskilningur.
Ég bið innilega margfaldlega afsökunar á trúgirni minni.
Blogg
ÉG BIÐST AFSÖKUNAR Á TRÚGIRNI MINNI
19:40 › 15. desember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
