Ég var að furða mig á því á föstudaginn var hvað hið fulla tungl virtist óvenjulega glæsilegt.
Það virtist eiginlega stærra en venjulega.
Ekki fullt, heldur beinlínis blindfullt.
Auðvitað trúði ég ekki mínum eigin augum.
En nú sé ég að þetta var rétt hjá mér. Tunglið var í rauninni 30 þúsund kílómetrum nær en venjulega.
Þar sem meðal fjarlægð tunglins frá jörðinni er 380 þúsund kílómetrar er ég soldið hróðugur yfir því að hafa skynjað með berum augum þó ekki meiri mun en þetta.
Kominn á þennan aldur, á ég við ...
Og gaman að því að einstaka sinnum sé hægt að treysta eigin augum!
Blogg
BLINDFULLT TUNGL
10:31 › 15. desember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
