Ég les í Fréttablaðinu að úrslit í samkeppni Landsbankans um hönnun á nýjum höfuðstöðvum á hafnarbakkanum í Reykjavík hafi legið fyrir síðan í júní.
En bankinn "treysti sér ekki" til að birta vinningstillöguna, þótt hundruðum milljóna hafi verið kostað til samkeppninnar.
Eina skýringin á því að menn þori það ekki hlýtur að vera sú að verðlaunatillagan beri vott um svo skefjalaust bruðl og óhóf.
Og jafnvel í júní - þegar menn voru þó enn vissir um að bankarnir myndu lifa af - hafi verðlaunatillagan verið "svo 2007".
Hvað þá núna!
Ég vona að Hanna Birna borgarstjóri fari að tilmælum arkitekta um að birta verðlaunatillögurnar opinberlega.
Blogg
SKEFJALAUST BRUÐL OG ÓHÓF?
08:59 › 14. desember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
